fbpx

KOPAR DRAUMUR Í DÓS

JólÓskalistinn

*VARÚÐ, ekki lesa þessa færslu ef að þú hatar jólin eða sælgæti.

Ég er búin að vera með visst jólalag á heilanum núna síðustu tvo daga og ekki skánaði ástandið þegar ég sá hvernig jólalakkrísinn í ár verður frá Johan Bülow vini mínum, koparhúðaður lakkrís hjúpaður í súkkulaði með saltkaramellu nammi namm, og já þið lásuð rétt K O P A R. Núna mega  jólin koma.

Screen Shot 2015-09-09 at 22.01.31BRONZE3

Það er algjör tilviljun að ég rakst á þetta þar sem ég var að skoða plaköt á vefsíðu Epal í dag, en þar stendur að lakkrísinn sé væntanlegur (líklega seinna í haust), svo kannski á ég ekkert að vera að segja frá þessu. Þetta eru hinsvegar stórhættulegar fréttir fyrir mig því ég er forfallinn aðdáandi jólalakkrísins sem er alltaf með nýju bragði á hverju ári.

Ég stóðst ekki mátið að segja ykkur þessar skemmtilegu og ljúffengu fréttir. Kannski er einhver ykkar svona jóla og nammigrís eins og ég!

**Uppfært**

Svona er að vera fljótfæra týpan, en í fyrsta lagi þá er þetta brons og í öðru lagi þá verða tegundirnar í ár þrjár, s.s. gull, silfur og kopar og allar með sitthvoru bragðinu. Við kvörtum ekki yfir þeim fréttum:)

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.421

TUTTUGU TJÚLLUÐ PLAKÖT

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Ella

    9. September 2015

    Bragðgóður og fallegur! juminneini

  2. Helgi Omars

    10. September 2015

    OHMYY!! Hljómar aaaaalltof vel! og lítur alltof vel út líka!

  3. Íris Tanja

    10. September 2015

    Vá hvað ég deili ást þinni á þessum lakkrís! Get ekki beðið eftir að taka smá forksot á jólasæluna :)

  4. Kristbjörg Tinna

    17. September 2015

    Ég sá líka að það er hægt að forpanta dagatalið!! Þessi jól leggjast vel í mig <3

  5. Hildur Ragnarsdóttir

    27. September 2015

    SALTKARAMELLA.. OH MY!

    er eðlilegt að vera orðin spennt fyrir jólunum?

    plís segðu já.