fbpx

KARLMANNLEGT HEIMILI HJÁ KLINTDRUPP

Heimili

Ég vona að fyrirsögnin móðgi enga en það er einfaldlega staðreynd að konur ráða oftast útliti heimilins og eiga þau stundum til að verða því smá kvenleg. Ef ég tek mitt eigið heimili sem dæmi þá hefur minn maður mjög takmarkaðan áhuga fyrir heimilinu okkar eða a.m.k. útliti þess og hef ég því algjörlega frjálsar hendur til að koma heim með hvaða hluti sem er og mála veggi bleika ef mér hentar. Kostur ekki satt? En þegar ég finn heimili þar sem karlmaðurinn ræður öllu þá er útkoman mjög oft algjörlega frábær eins og innlitið hér að neðan sýnir. Hér býr Jesper Klintdrup Poulsen hönnunaraðdáandi með meiru og hefur hann haldið úti mjög vinsælum instagram aðgangi undir nafninu Klintdrupp og opnaði nýlega bloggsíðu. Litapallettan samanstendur af brúnum, gráum, hvítum, svörtum og bláum og má í hverju horni finna glæsilega hönnun sem er oftar en ekki norræn.

screen-shot-2017-01-12-at-11-40-37

Klintdrupp á glæsilegt safn af stelli frá Royal Copenhagen og myndirnar hans fá mig til að langa samstundis að rjúka út í Kúnígúnd og versla mér nokkra bolla. -Það er reyndar bara tímaspursmál.

screen-shot-2017-01-12-at-11-39-35 screen-shot-2017-01-12-at-11-39-52

Klassísk skandinavísk hönnun heillar hann og má sjá nokkra mjög verðmæta hluti á heimili hans.

screen-shot-2017-01-12-at-11-40-27 screen-shot-2017-01-12-at-11-41-14 screen-shot-2017-01-12-at-11-41-38

Hér er fallega búið um á hverjum degi en þessa mynd þyrfti ég líklega að sýna mínum manni sem sönnun til þess að karlmenn kunni svo sannarlega að búa fallega um rúmið haha.

screen-shot-2017-01-12-at-11-41-54 screen-shot-2017-01-12-at-11-42-17

Draumalampinn minn þessa stundina, Panthella!

screen-shot-2017-01-12-at-11-42-30

Nagelstjakarnir frægu sem fást í Snúrunni hér heima.

screen-shot-2017-01-12-at-11-42-41 screen-shot-2017-01-12-at-11-42-51

Klintdrupp blandar saman nokkrum seríum frá Royal Copenhagen en Mega Fluted er á mínum óskalista.

screen-shot-2017-01-12-at-11-43-07 screen-shot-2017-01-12-at-11-43-32 screen-shot-2017-01-12-at-11-43-46

screen-shot-2017-01-12-at-11-44-01 screen-shot-2017-01-12-at-11-44-24 screen-shot-2017-01-12-at-11-44-58 screen-shot-2017-01-12-at-11-45-20 screen-shot-2017-01-12-at-11-46-17 skaermbillede-2017-01-09-kl-23-23-56

Ég mæli með að fylgja þessum smekkmanni, hann veit aldeilis hvað hann syngur og ég er bálskotin í honum. @Klintdrupp. Eruð þið þó ekki smá sammála því sem ég nefndi hér að ofan með karlmannleg heimili vs. kvenleg heimili? Eða er þetta kannski alveg jafnt á ykkar heimili:)

svartahvitu-snapp2

SPENNANDI NÝJUNGAR FRÁ ELSKU IKEA

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Guðrún

    13. January 2017

    Minn maður hefur allt of miklar skoðanir á heimilinu og við höfum ólíkan smekk. Það tók okkur eitt ár að finna sjónvarpsskáp :p
    En við virðumst vera að lenda á okkar stíl

  2. Asa Regins

    13. January 2017

    Fallegt !

    .. og ekki veistu hvaðan borðstofuborðið er ? ?

  3. Þórunn

    13. January 2017

    Kærastinn minn hefur því MIÐUR skoðanir á öllu sem er keypt inn á heimilið, alveg frá stóru mublunum niður í omaggio vasa.

    En hans afsökun er reyndar sú að ég spyr víst alltaf hvað honum finnst, og svo verð ég pirruð ef hann segir að honum sé alveg sama, þannig hann hefur tekið upp á því að mynda sér skoðanir á öllu í staðinn.

    • Svart á Hvítu

      13. January 2017

      Það er snilld.. þú verður að hætta að spurja hann og mæta bara með hlutinn heim:) Ef ég fæ skoðun frá mínum þá finnst honum mjög oft hluturinn ljótur!

  4. Sigrun

    15. January 2017

    Gullfallegt! Veistu hvaðan kringlótta marmaraborðið er?