Ég hef lengi ætlað að birta myndir af heimili Anniku Von Holdt, ég fylgist með henni á Instagram en hún er ein af þessum konum sem er bara “alveg meðetta”. Sum ykkar kannast eflaust við skvísuna en heimilið hennar birtist á forsíðu íslenska Home Magazine í haust, en síðan þá hefur ýmislegt breyst, heimilið er eitt hennar stærsta áhugamál og hefur hún einnig gert upp þrjár 100 ára gamlar íbúðir í Kaupmannahöfn og hefur heimilið hennar birst í ýmsum tímaritum. Fyrir utan áhuga sinn á hönnun og híbýlum þá starfar Annika sem rithöfundur og kann hún því mjög vel að koma fyrir sig orði, hún er í raun ótrúlega skemmtilegur penni, smá kaldhæðin og með húmor fyrir sjálfri sér. Ég mæli með að fylgja henni á Instragram @annikavonholdt.
Frá því að ég byrjaði að fylgjast með henni hefur þessi sófi fengið þrjú áklæði, bleiki er hrikalega flottur en lengi vel var hann hvítur eins og mikið á heimili Anniku.
Hún er mjög dugleg að birta myndir af kettinum sínum, sem er mjög fyndinn karakter.
Algjör pæja með náttúrulegu gráu lokkana sína,
Það er eitthvað við fólk sem birtir myndir af gæludýrunum sínum, mér líkar alveg ofsalega vel við þannig fólk;)
Hrikalega fallegt heimili, eitt af mínum uppáhalds innlitum.
Skrifa Innlegg