fbpx

INNLIT HJÁ HEIMSFRÆGUM HÖNNUÐUM

Heimili

Eitt af fremstu hönnunarteymum í heiminum í dag er án efa hið hollenska Ontwerpduo, ég hef fylgst vel með þeim frá því að ég bjó í Eindhoven, en parið Tineke Beunders og Nathan Wierink útskrifuðust einmitt frá Design Academy Eindhoven fyrir nokkrum árum síðan. Fyrir áhugasama þá er hægt að kynna sér verk þeirra á heimasíðu þeirra hér – 

Þessvegna varð ég mjög glöð þegar ég rakst á þessar fínu heimilismyndir frá þeim, einfalt heimili en með ótrúlega fallegum lausnum. Þá sérstaklega fölbleika lakkaða gólfið og það hvernig þunnar gardínur eru nýttar til að loka svefnherbergið af.
h5
h6 h7h2 h8

Litapallettan á heimilinu er virkilega falleg, græni liturinn og sá bleiki fara ótrúlega vel saman en svefnherbergið er þó í algjöru uppáhaldi hjá mér. Það er góð lausn að stúka rúmið svona af og ég get vel ímyndað mér að þarna sofi maður örlítið betur.

Sem minnir mig á að skríða upp í rúm, ætla mér að vakna eldsnemma til að hvetja maraþonmanninn minn áfram í fyrramálið:)

Eigið góða helgi x

 

#ATFSMÁRALIND - VINNINGSHAFI DAGSINS

Skrifa Innlegg