fbpx

HUGMYND FYRIR BARNAHERBERGIÐ

BarnaherbergiDIY

Eins og gefur að skilja hefur áhugi minn á barnaherbergjum og hugmyndum fyrir barnaherbergi aukist töluvert undanfarið:) Ég get legið tímunum saman á Pinterest í leit af sniðugum hugmyndum og innblæstri, í gær benti systir mín mér á sniðugan hóp á Facebook sem heitir “Barnaherbergin” og þar rakst ég á þessa fallegu útfærslu á dýrakrukkum. Við höfum eflaust mörg séð þessa hugmynd áður, en ekki svona ofsalega fallega.

10609471_10154497791850327_7339425532397420210_n

Það er hún Margrét Dagbjört Pétursdóttir sem á heiðurinn af þessum fallegu dýrakrukkum en hún segist hafa notað Schleich dýr sem hún fékk í Toys’R’us sem hún límdi ofan á stórar pestó krukkur sem hún hafði spreyjað lokin á. Ég er mikið heillaðri af þessari hugmynd en þeirri þar sem að dýrin eru spreyjuð í sama lit og lokin, þetta er svo mikið meira “ekta”:)

Sniðugt að nota svona krukkur undir t.d. perlur, spennur eða annað smádót.

ÓSKALISTINN: NEON LJÓS

Skrifa Innlegg