fbpx

ÓSKALISTINN: NEON LJÓS

Fyrir heimiliðÓskalistinn

Enn eina ferðina er ég komin með neon ljós á heilann. Þetta er eitt það flottasta sem ég veit um og ég mun einn daginn eignast svona fallegt veggljós, þau eru reyndar frekar dýr og enn sem komið er hef ég ekki fundið ljós sem fer undir 50 þúsund krónurnar, en ég er enn að leita. Ég átti fallegan “love” neon lampa sem brotnaði fyrir nokkrum árum, ég er ennþá að syrgja hann því það er ekkert grín að komast yfir svona ljós.

main-1.original.585x0 main-2.original.585x0 main-3.original.585x0 main-4.original.585x0main.original.585x0

Screen Shot 2014-08-15 at 6.53.00 PM

Svona neon ljós eins og myndin hér að ofan sýnir fæst t.d. hér og hér, þá þarf að kaupa hvern staf fyrir sig + tenglana, en þá er reyndar hægt að velja hvaða orð sem er eða nafn. Verðið er samt alltaf 50+ ef þú vilt fleiri en 4 stafi.

Ef þú veist um fleiri síður máttu endilega deila þeim með mér, og ég efast ekki um að það séu fleiri þarna úti sem væru til í eitt flott neon skilti á heimilið!

SÆNSKT & FALLEGT

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Thelma

    16. August 2014

    Kannski smá langsótt – en ég sá svona skilti hjá Nings (fyrir einhverjum árum) og hafði samband við þá og spurði hver hafði gert ljósið fyrir þá. Hann gaf mér upplýsingarnar sem ég hef týnt núna. Þú getur kannski tékkað á því :)

  2. Agla

    17. August 2014

    Þetta er svo flott :) hvað varð um bleika neon hólkinn þinn ? ;)

    • Svart á Hvítu

      17. August 2014

      Góð pæling… þarf að grafa hann uppúr draslinu inni í skúr!:) Hlýtur að vera að fela sig þar…