Ég bauð pabba í heimsókn fyrr í kvöld til að hengja upp og tengja ljósið í svefnherberginu. Hann þurfti bara nokkrar megaviku-pizzusneiðar í laun en það er ekki mikið fyrir svona góða og snögga þjónustu:)
P.s. þarna sést í fína nýja Pia Wallén rúmteppið mitt frá Snúrunni:) Það á þó skilið sérfærslu sem kemur inn fljótt!
Icarus ljósið keypti ég í París fyrir nokkrum árum síðan, það hefur aldrei fengist á Íslandi en þó er hægt að versla það á netinu fyrir áhugasama:) Ég er alltaf jafn skotin í því, en það er hannað af hollenska hönnuðinum Tord Boontje.
Það kostar um 13 þúsund krónur fyrir utan sendingarkostnað og t.d. hægt að kaupa -hér-.
P.s. er búin að vera óvenjulega virk á Instagram, þið finnið mig -hér- ef þið viljið fylgjast með:)
-Svana
Skrifa Innlegg