Speglar í Mikado á HönnunarMars stóð upp úr sem ein af uppáhalds sýningunum sem ég kíkti á. Þar sýndi Theodóra Alfreðsdóttir vöruhönnuður þrjár útgáfur af flottum speglum úr ryðfríu stáli. Mikado er ein fallegasta verslun borgarinnar og pössuðu speglarnir fullkomlega við glæsilegt verslunarrýmið.
Meðfylgjandi má sjá nokkrar myndir frá opnunarhófinu – teknar af Laimonas Dom Baranauskas // Sunday & White Studio
Fyrir áhugasama þá stendur sýningin eitthvað ööörlítið áfram næstu nokkra daga … svo hafið hraðar hendur og þið náið að kíkja við í fallegu Mikado sem stendur við Hverfisgötu 50.
Til hamingju elsku Theodóra með glæsilegu speglana þína. Vá hvað þeir eru fallegir – og þessi gyllti mætti alveg eignast sinn stað á mínu heimili ♡
Skrifa Innlegg