Ég stóðst ekki mátið að deila þessari ótrúlegu hönnun með ykkur! Belgíska hönnunarteymið Studio Job -sem ég er nú almennt nokkuð hrifin af- eru hönnuðir þessa áhugaverða lampa, ég verð að viðurkenna að ég hló þegar ég sá þá fyrst en svo eru þeir alveg furðulega fljótir að venjast.
Lamparnir sem gerðir eru í takmörkuðu upplagi eru koparhúðaðir og bananinn sjálfur gerður úr munnblásnu gleri. Það er því engin hætta á því að ég muni fjárfesta í eintaki.
Þessir lampar falla mögulega í sama flokk og dýrahúsgögnin frá sænska Front design, eða jafnvel byssulampans fræga eftir Philippe Starck.
Sitt sýnist þó hverjum, mér finnst þeir bara vera nokkuð töffaralegir! Hvernig lýst ykkur á?:)
Skrifa Innlegg