fbpx

BLOGG & BLOGGARAR

Persónulegt

Í dag rakst ég á áhugaverða umræðu um blogg og bloggara og kom það mér jafnframt mjög á óvart að búið er að skrifa heilu ritgerðirnar um þetta og jafnvel eina þar sem Trendnet spilar mjög stórt hlutverk í. Ég stóðst ekki mátið og las bæði ritgerðina, sjá hér ásamt öðru áhugaverðu erindi um bloggsíður sem flutt var á vorráðstefnu Viðskiptafræðistofnunnar núna nýlega, sem var reyndar einnig töluvert betri úttekt á þessu málefni. Það vakti furðu mína að í hvoru tveggja er ekki leitað álits hjá bloggurum sem ætla mætti að gæfi hvað bestu innsýnina í þetta málefni. Enn og aftur eru allir bloggarar settir undir sama hatt eins og nýlega þegar íslenskir fjölmiðlar gerðu sér mat úr íslenskum bloggum, en þegar kemur að vöruumfjöllunum þá vona ég innilega að lesendur slíkra rannsókna átti sig t.d. á þeirri staðreynd að snyrtivörubloggarar eru alveg sérflokkur útaf fyrir sig og frábrugðnir flestum bloggurum og jafnframt sá hópur sem virkastur er í umfjöllunum. Það er vegna þess að snyrtivöruframleiðendur og dreifingaraðilar gera ráð þeim fyrir vörum sem gefnar eru til kynninga þá bæði til tímarita og bloggara sem er fyrst og fremst ástæða þess að svona mikið sé um umfjallanir hjá snyrtivörubloggurum. Ég get svo sannarlega sagt ykkur að stórfyrirtæki eins og Ikea eða Epal eru ekki að gefa mér mubblur til að prófa í þeirri von að ég skrifi um þær, en vá hvað það hlyti nú að vera næs! Ég ætlaði alls ekki að skrifa neina langloku um þetta þó svo að ég gæti rambað um þetta í heilt kvöld. Flestar þær vörur sem ég hef fengið gefins (sem eru ekki margar á mínum 6 ára bloggferli) hef ég fengið löngu eftir færslur um þar til gerða vöru, þá hafði hönnuðurinn eða viðkomandi verslun tekið eftir það miklum sölukipp að mér hefur verið færð varan í þakklætisskyni fyrir “hjálpina”. Þó svo að færslurnar hafi einfaldega verið skrifaðar útfrá áhuga mínum og ekki í nokkru samstarfi við einn eða neinn. Ég vona að þið sjáið hvert ég er að fara með þetta, en það er alltaf góður ávani að dæma ekki þegar þú veist ekki allar staðreyndir. Við erum jú ólík eins og við erum mörg og það á svo sannarlega líka við bloggflóruna:)

P.s. ég rakst á svo fáránlega hressandi ummæli um bloggið mitt í master-ritgerðinni að ég á til með að deila því með ykkur:)

“…mér finnst oftast með þessa bloggmenningu að þússt það eru allir með þetta sama, hjarðhegðunin. Þússt það eru allir með Iittala, og margir með eitthvað svona svartáhvítu, ég meina ok sorrí ég bara æli ef ég á að sjá enn eitt bloggið af svörtu, gráu og hvítu með vott af við. Og ef þú vilt vera djörf, smá bleikt. Þússt, það er eins og hún sé alltaf að pósta sömu íbúðinni, það er bara sami stíllinn, það er enginn fjölbreytileiki…”

Ahhhh það sem ég elska svona skvettu af hreinskilni, point taken!…

JN5

Hér er ein sérvalin fyrir færsluna, svart, grátt, hvítt og viður… með smá bleiku til að vera djörf. Það er ekki að ástæðulausu að ég heillist af slíku:)

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.42111

INNLIT HJÁ ÖRNU & SIGVALDA

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Brynja Björk

    21. April 2016

    Sæl Svana.

    Gaman að þú hefur lesið ritgerðina mína, ég flutti reyndar líka erindi á vorráðstefnunni í fyrra um rannsóknina sem og á markaðsráðstefnunni Krossmiðlun. Ég les trendnet og þá sérstaklega þína síðu oft og hef mjög gaman af.
    Markmiðið með rannsókninni var að skoða hvað skipti lesendur íslenskra blogga máli þegar kæmi að því að deila efni áfram á netinu. Því lá beinast við að úrtakið kæmi úr hópi lesenda (ekki bloggara). Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem engar sambærilegar rannsóknir höfðu þá verið gerðar á íslandi. Í seinni rannsókninni sem þú vísar til er einmitt stuðst við þá fyrri. Rannsóknin fór í gegnum mjög gott ritrýningarferli fyrir birtingu í tímariti og stóðst það.
    Varðandi ummælin sem þú vitnar til og talar um hreinskilni í því sambandi eru einmitt úr einu af djúpviðtölunum sem tekin voru fyrir rannsóknina. Við vinnslu slíkra viðtala er lögð mikil áhersla á að rannsakandi hafi ekki með neinum hætti áhrif á skoðanir eða lýsingar viðkomandi og gætti ég þess til hins ítrasta.
    Ég hvet þig til að skoða báðar rannsóknirnar með opnum hug og nýta þér það sem þar kemur fram til þess að bæta þessa frábæru síðu. Það eru ekki allar bloggsíður sem enda sem efni í ritrýnda rannsókn:)

    • Svart á Hvítu

      21. April 2016

      Sæl Brynja, takk fyrir skilaboðin:)
      Ég er mjög glöð að þessar rannsóknir hafa verið gerðar og þykja þær mjög fræðandi og 100% margt sem ég ætla að hafa á bakvið eyrað. Ég hefði jafnvel hafa viljað vita af þeim fyrr.
      Varðandi alla bloggumfjöllun sem hefur verið undanfarið, það virðist alveg vera að einhverjir séu að velta því fyrir sér hvernig fyrirkomulag bloggarar eru með. Þá verð ég bara alltaf jafn svekkt þegar öll blogg virðast vera sett undir sama hattinn, því ég veit fyrir mína parta að ég legg allt aðrar áherslur á mitt blogg en margir þarna úti. En líklegast ekkert við því að gera:) Ég sel auglýsingar hér í hliðarstikunni og það er minn hagnaður, ég sel ekki færslur eða álit og það kæmi ekki til greina. Allt sem fer í bloggfærslur er alltaf bara útfrá mínum áhuga, því bloggið er eitt af mínum helstu áhugamálum. En ég veit að það er ekki endilega þannig hjá öllum.
      Ummælin mörg í ritgerðinni voru mjög áhugaverð, og klárlega eitthvað til að íhuga.
      Ég ætla bara að treysta á það að mínir lesendur viti hvar ég standi, og að fæstum þeirra “langi til að æla” þegar ég birti enn eitt gráa heimilið haha:) Finnst þetta komment hrikalega fyndið:)
      Með bestu kveðju, Svana

  2. Elísabet Gunnars

    21. April 2016

    Hlakka til að lesa ritgerðina yfir morgunbollanum. En Jáhá!! .. Skemmtilegt að þú birtir ummælin í þinn garð ..

  3. Ragga

    23. April 2016

    Ok ég hló upphátt að þessu kommenti – en mikið sem ég skil þig vel að þykja leiðinlegt þegar þetta er allt sett undir sama hatt, alhæfingar eru aldrei af hinu góða, sama hver á í hlut.

    PS – ég elska svarthvítugráuvotturafviðogdassafbleiku myndirnar ;)

    • Svart á Hvítu

      23. April 2016

      Hahahah, gott að einhver fíli nú þessar endalausu íbúðir sem ég birti haha:)

  4. RR.

    26. April 2016

    Algjörlega frábært komment.
    Ætli manneskjan sem kommentar sé neydd til þess að lesa bloggið þitt á hverjum degi greyið? hahhaha…. :)

    Persónulega hef ég mjög gaman að því að skoða alltaf þessa “sömu íbúð” ;)

    • Svart á Hvítu

      26. April 2016

      Hahah já einmitt! Virðist amk vera erfitt að sleppa bara að lesa blogg sem maður fílar ekki:)
      Hinsvegar þá finnst mér þetta komment ekki hjálpa ritgerðinni á neinn hátt og tengist ekkert upphaflega efninu, dálítið eins og að fá að vera fluga á vegg í mjög neikvæðum saumaklúbb:)
      Mbk. Svana