Ég hef lengi hrifist af danska hönnunarmerkinu Normann Copenhagen og það var því mjög skemmtilegt að kíkja í heimsókn með stelpunum í höfuðstöðvarnar þeirra í hjarta Kaupmannahafnar núna nýlega. Daniel Leosson sem er dansk / íslenskur og er sölustjóri hjá Normann Cph til marga ára tók ótrúlega vel á móti okkur og kynnti merkið frá A-Ö ásamt því að dekra okkur með ljúffengum hádegismat á svölunum í bongó blíðu með dásamlegu útsýni. Höfuðstöðvarnar fluttu í þessa hliðargötu frá Strikinu í fyrra og því get ég mjög vel mælt með heimsókn hingað ef þú átt leið um þessar slóðir. Fyrir þau ykkar sem ekki þekkið Normann Copenhagen þá framleiða þau eina þekktustu íslensku hönnunina, sem eru Vaðfuglarnir hannaðir af Sigurjóni Pálssyni og fást í Epal.
/ Myndirnar tók uppáhalds Aldís Páls
Á fyrstu hæðinni var yfirstandandi sýning á fallegum listaverkum með blómaþema, en þetta rými mun vera nýtt sem lifandi sýningarrými og því alltaf eitthvað nýtt að sjá.
Heimilisfangið er Niels Hemmingsens Gade 12, og í þessari götu má einnig finna fleiri fallegar hönnunarverslanir.
Takk fyrir okkur Normann Copenhagen og Daniel –
Skrifa Innlegg