fbpx

HEIMILI SEM KEMUR MANNI Í SUMARGÍRINN

Heimili

Alltaf verður maður svo bjartsýnn þegar sú gula lætur sjá sig! En þetta heimili er einmitt það sem ég þurfti að skoða í dag, svo sumarlegt og fallegt. Stofan er sérstaklega falleg með grágrænum veggjum og Koushi ljósi sem eru sjaldséð hér á landi. Hér er búið að gera mikið úr litlu og ódýrar lausnir eins og viðarhillurnar og fatasláin í svefnherberginu. Þessi íbúð er lítil en þó algjört sjarmatröll!



Myndir via Entrance

Ég get ekki beðið eftir að græja litlu “svalirnar” hjá okkur til að hafa það huggulegt í sumar, en svíarnir mega eiga það að þau kunna virkilega að meta þessi litlu útisvæði sín í þéttbyggðum borgum og oft á tíðum eru svalirnar nánast eins og önnur stofa. Þarna væri gott að sitja með hvítvínsglas:)

HOME DETAILS // IITTALA AARRE

Skrifa Innlegg