Ég veit ekki með ykkur en ég elska að gramsa… og ég er mjög forvitin að eðlisfari. Þessvegna elska ég heimili sem eru stútfull af hlutum til að skoða og spá í og þetta hér að neðan er einmitt þannig. Eins mikið af stílhreinum og minimalískum heimilum ég birti hér á blogginu þá hentar sá stíll ekki beint mér sjálfri, enda er ég of mikill safnari til þess og vil helst hafa alla hluti uppivið. Ég get alveg sokkið mér inn í þessar myndir og skoða þær aftur og aftur og finnst þetta heimili algjörlega æðislegt!
Akkúrat þessi mynd hún hittir mig beint í hjartastað – þarna langar mig að vera og fá að gramsa smá haha
Sjáið hvað það stækkar rýmið að hengja spegilinn fyrir ofan sófann
Fallegur litur á veggnum, ég veit að Nordsjö hefur verið í samstarfi við helstu bloggarana í Skandinavíu og stílista og þori ég að veðja að Árný vinkona mín hjá Sérefni þekki þennan lit! Ég ætla að giska á litinn Deep Paris.
Fallegt barnaherbergið í dálítið rómantískum stíl
Svona má svefnherbergið mitt líta út ♡
Sjá fleiri myndir hjá Bjurfors
Þetta heimili er algjör gullmoli – og ætla ég að vista nokkrar myndir á Pinterest til að geta leitað í innblástur seinna.
Ég man ennþá tilfinninguna þegar ég hef komið inn á svona falleg “grams” heimili og ég get eytt þar tímunum saman að skoða fallega hluti. Eitt uppáhalds “grams” heimilið mitt heimsótti ég eitt sinn þegar ég var að kaupa eitthvað notað af netinu og ég heillaðist alveg upp úr skónum. Það heimili endaði svo á forsíðu H&H enda varð ég að fá að komast aftur þangað í heimsókn og þá var gott að hafa þá afsökun að starfa sem blaðamaður haha.
Er ég nokkuð ein svona klikkuð?
Skrifa Innlegg