fbpx

HEIMA Í DAG

HeimiliPersónulegt

Koma jólin ekki pottþétt þó að ekki verði búið að skreyta mikið, baka nokkrar sortir, kaupa jóladress og komast í jólaklippingu, jú það held ég nú:) Þessa stundina er eina markmiðið mitt að ná að senda jólakortin sem þegar hafa verið prentuð, kaupa jólatré og pakka inn gjöfum sem ekki hafa allar verið keyptar. Heimilið er ekki komið í jólabúning þó að ég sé að reyna, Bjartur minn fékk hita í gær og við erum því frekar útbrunnin í dag og öll “dagskrá” verið sett til hliðar, ég tók því bara í staðinn nokkrar myndir hér heima á milli þess sem horft var á þætti:)

IMG_1736

Ég hengdi smá greni á seríuna til að gera hana smá hátíðlegri, hún er jú þarna allan ársins hring.

3

Æj ég stóðst ekki mátið þegar ég sá þessa krúttlegu ísbirni í blómabúð þegar ég stökk inn að kaupa hýasintur. Mér finnst þeir smá jólalegir:)IMG_1730

2 IMG_1728

Það er orðið dálítið síðan að þessi klukka þjónaði tilgangi sínum, fyrst var það kötturinn sem lét perlurnar ekki í friði og núna er það litli frændi minn hann Sveinn Rúnar sem er spenntur fyrir henni. Því fær hún að vera svona:) Litla jólatréð fékk ég í Litlu Garðbúðinni uppá Höfða.

1

 Svo ein í lokin af tímaritum mánaðarins sem ég mæli með, svo skemmir ekki fyrir að það fylgja merkispjöld frá bynord með Bolig.

BAUGAR & BEIN

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Elín Þórhallsdóttir

    17. December 2014

    Bara til að vera viss, tekurðu rafhlöðurnar úr SASA klukkunni þegar perlurnar eru svona utan um hana? Kötturinn minn lætur hana nefninlega í friði fyrir utan það að hann er búinn að venja sig á að láta rófuna koma við perlurnar þegar hann labbar fram hjá þeim (ég hef ekki hugmynd um hvað hann fær út úr því – enda eru þessi kettir furðuverk)

    • Svart á Hvítu

      17. December 2014

      Já það eru engar rafhlöður í minni:) Hahah já, ég gæti nú bara gert sérfærslu um köttinn minn og hvers ég “þarf að gjalda” með innbúið mitt útaf honum!!
      -Svana

  2. Svava Gísladóttir

    18. December 2014

    Í hvaða blómabúð fékkstu krúttlegu ísbirnina :)

    • Svart á Hvítu

      19. December 2014

      Ég fann þá í blómabúð Burkna sem er í miðbæ Hafnarfjarðar:)

  3. Marta

    19. December 2014

    Ég verð að spurja hvar fékkstu seríuna hjá þér? Er búin að leita af svona einum of lengi :)

    • Svart á Hvítu

      19. December 2014

      Ég fann mína í Bauhaus!:) Svo eru líka til svona frá House Doctor aðeins veglegri, hún ætti að fást í Fakó eða Tekk:)

  4. Maria

    19. December 2014

    Hæhæ
    Ég bara verð að spurja hvar þú fékkst þennan sófa? :)

    • Svart á Hvítu

      20. December 2014

      Hæhæ, þetta er Karlstad frá ikea með isunda áklæði:)