fbpx

BAUGAR & BEIN

Ég er mjög spennt fyrir litlu og fallegu lista og hönnunargallerý/verslun sem opnaði á dögunum á Strandgötunni í Hafnarfirði sem heitir Baugar og bein. Ég kíkti inn í flýti um daginn þegar ég var í göngutúr og smellti af nokkrum myndum á símann til að sýna ykkur, ég þarf þó að kíkja betur við á næstu dögum því ég er með augastað á einu verki þarna inni.
1

Falleg ljósmynd eftir Gígju Einarsdóttur. Þið ættuð sum að kannast við þennan fagra hest því ég veit ekki betur en að hann prýði jú rúmfötin frá bynord.

2

Hálsmen eftir Hildi Yeoman fást t.d. þarna.

3

Svo hef ég lengi verið hrifin af verkunum hennar Hörpu Einars listakonu, en hún er einmitt ein af þremur sem stendur á bakvið verslunina.

Ég tók þessar myndir hér að ofan af facebook síðu Baugar og bein, ótrúlega falleg print eftir Hörpu Einars.

4 5

Fatahönnun, listaverk, ljósmyndir og aðrir fjársjóðir. Svo er auðvitað svo margt annað frábært að sjá í Hafnarfirði, t.d. var Heiðdís Helgadóttir teiknari að opna vinnustofu fyrir stuttu síðan ská á móti Baugar og bein og hin yndislega Andrea með fataverslunina sína nokkrum skrefum frá. Ef þetta er ekki næg ástæða til þess að skella sér í bæjarferð “alla leiðina” inní Hafnarfjörð;)

-Svana

GYLLTUR HÁTÍÐARSPEGILL

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Sandra Karls

    15. December 2014

    Hafnarfjörðurinn er bestur ❤️ þarf klárlega að skella mér í göngutúr í vikunni og kíkja á þessa fínu búð :)

  2. harpaeinars

    15. December 2014

    Þúsund þakkir.. Endilega kíktu á event á Föstud. :)