fbpx

FYRSTA SNAPCHAT INNLITIÐ: SVARTAHVITU

HeimiliÍslensk hönnun

Mig hefur langað í dálítinn tíma að stíga örlítið út fyrir þægindarhringinn minn og stækka Svart á hvítu bloggið í leiðinni. Bæði fyrir mig til að staðna ekki, því bloggið er jú orðið 7 ára gamalt og einnig til þess að ég – sem starfa sem einyrki hitti oftar fólk! Niðurstaðan var Snapchat! 

Ég hef því ákveðið að ég ætla að halda úti öflugustu Snaphat heimilis & hönnunar rás landsins, nei nei við ætlum ekkert að gera þetta í neinum hálfkæringi – þannig verður það aldeilis ekki. Í dag var fyrsta innlitið á Svartahvitu snappinu og var það inn á eitt fallegasta heimili landsins hjá HAF hjónunum þeim Karitas Sveinsdóttur og Hafsteini Júlíussyni hönnunargúrúum.

Hér að neðan eru nokkrar valdar símamyndir – það er svo mikið mikið meira að sjá á Snapchat sem verður inni næstu 22 klukkustundirnar.

15682008_10155567450883332_1817102055_o

Þið hafið séð mig fjalla um HAF hjónin reglulega í gegnum tíðina og gáfu þau út fyrir jólin kertastjakann Stjaka sem ég er ástfangin af. Við sýnum ykkur kertastjakann vel og vandlega á snappinu. Karitas er án efa ein smekklegasta kona landsins og það var dásamlegt að fá að kíkja í heimsókn til hennar og fá að sýna ykkur heimilið sem er að sjálfsögðu einstaklega fallegt.

Mig langar þó til þess að biðja ykkur um eitt, til þess að ég geti sinnt þessu af alvöru þá vil ég hafa ykkur sem flest inni á Svartahvitu snappinu og langar mig til að biðja ykkur um að dreifa orðinu ef ykkur líkar við efnið og ef þið viljið sjá meira af svona.

15681823_10155567451453332_1043120347_o15696512_10155567451928332_816207254_o 15681826_10155567452113332_1778703078_o-2 15682437_10155567437573332_2011160936_o

Ég byrjaði þó daginn á heimsókn til Andreu (AndreA Boutique) og Heiðdísar Helgadóttur (teiknisnillingur) vinkvenna minna sem voru að opna Pop up verslun á Laugavegi 72, ég hvet ykkur til þess að kíkja á þær stöllur á Laugavegsröltinu.

P.s. Því fleiri sem við erum á Svartahvitu Snapchat þá verður efnið meira. Ég verð ykkur mjög þakklát ef þið viljið aðstoða mig við þetta.

Jólakveðja, Svana

svartahvitu-snapp2

TOPP 5: BESTU ILMKERTIN

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

8 Skilaboð

  1. María Rut

    21. December 2016

    Dásemd! Eru þetta ekki IVAR skápar þarna á veggnum? Mig vantar svo góð ráð um hvernig best sé að mála IVAR – vorum að fá okkur dýpri týpuna inn í stoðu undir sjónvarpið – algjör snilldarhirlsa!

  2. Margrét

    21. December 2016

    Skemmtilegt innlit og ótrúlega gaman að fara með þér í búðarráp.
    Meira svona, takk! :)

  3. Edda

    21. December 2016

    Sjúklega skemmtilegt innlit! Til í að sjá meira af þessu hjá þér :)
    Veistu nokkuð hvaðan svarti standllampinn þeirra er?

  4. Brynja Eldon

    21. December 2016

    Æðislegt þetta búðarráp og innlitlið geggjað… væri til í að sjá myndir af baðherberginu líka hérna… sjúkt baðherbergið hjá þeim.
    Bkk.. Brynja ;O)

  5. Edda Sif

    21. December 2016

    Veistu hvaða gólfefni er á íbúðinni ??

  6. Andrea Magnusdottir

    21. December 2016

    Þetta er æði <3
    elska að fara með þér í búðir :)

  7. Erla

    22. December 2016

    hvaðan eru gráu skáparnir í stofunni ? Ikea Besta?