fbpx

FINNSKT & FALLEGT

Heimili

Í gærkvöldi var ég aðeins að reyna að skipuleggja bloggið og tímastilla færslur þegar ég ákvað að renna aðeins yfir “drafts” eða öll þau blogg sem ég hef ekki alveg klárað. Það kom mér mjöööög á óvart að ég var með 70(!) óbirtar færslur á lager sem ég hef geymt eða gleymt síðustu ár. Nokkrar sem ég gat þó hent strax út á meðan það eru aðrar sem ég virðist bara hafa gleymt að birta eða ekki nennt að klára á sínum tíma. Ég dett stundum í þvílíkan blogggír og get hent saman færslum eins og að drekka vatn og það var upphaflega hugmyndin með þessum færslum í drafts, það er nefnilega svo gott að eiga til efni á lager þegar maður dettur úr blogggírnum. En verra er þó að gleyma lagernum sínum;)

Ég ætla að sjálfsögðu að reyna að birta eitthvað af þessum færslum mínum því margar eru hreinlegar stórgóðar. Hér kemur eitt innlit sem ég átti til á lager en þetta er heimili finnska bloggarans Riikka hjá Lagerma blogginu. Á þessum tíma var íbúðin til sölu en ég er sannfærð um að hún sé seld í dag því hún er mega fín!

miaju9maiju5maiju1 maiju2 maiju4 miaju6 miaju8 miaju9a miaju9b miaju9c WWW_MEDIUM_PLUS-4

Klárlega innlit sem átti ekki að gleymast! Verður spennandi að sjá hvað ég á meira til á lager:)

Screen-Shot-2015-04-23-at-22.38.421111

LAGERSALA HJÁ SNÚRUNNI & FLEIRUM

Skrifa Innlegg