Þó svo að þetta innlit flokkist sem “gamalt” í bloggheimum þá á það svo sannarlega ennþá erindi. Hér bjó sænski stílistinn og smekkdaman Elin Kickén sem bloggar einnig hjá Recidense Magasine ásamt því að halda úti fallegu instagrami. Heimilið sem er aðeins 49 fermetrar er eins og kemur varla á óvart ansi smart og í þessum klassíska skandinavíska stíl með smá dramatísku ívafi þar sem veggir í stofunni eru svartmálaðir. Hér er hugsað út í öll smáatriði og virðist hver hlutur hafa verið vandlega valinn…
Myndir via Alvhem Makleri
Skrifa Innlegg