Stórglæsilegt heimili Rutar Kára hefur vakið mikla athygli og meðal annars prýtt blaðsíður erlendra hönnunartímarita og þykir afskaplega vel heppnað. Rut Kára er jú einn fremsti – og án efa þekktasti innanhússhönnuður landsins. Hér hefur hún búið ásamt fjölskyldu sinni í 20 ár og er þetta glæsilega hús núna komið á sölu. Myndirnar tók svo enginn annar en Gunnar Sverrisson.
Mig dreymir um þetta tréhús í garðinum – vá þvílíkur draumur að eiga börn með svona æðislegan garð og innipotturinn er alveg einstaklega spennandi. Hér gæti ég hugsað mér að búa ♡ Og er ég nokkuð ein um það að vera spennt að sjá hvernig Rut mun koma sér fyrir á nýju heimili?
Skrifa Innlegg