Lengi vel hefur mig dreymt um að mála svefnherbergið mitt í dökkum lit en aldrei látið það eftir mér, vinsælust er sú afsökun að við erum bara að leigja íbúðina og því tæki því varla að mála hér hvern krók og kima aðeins til þess að mála hvítt aftur. En hér líður okkur vel og vonandi munum við búa hér í nokkur ár til viðbótar og því sló ég til og málaði loksins!
Við tók heill frumskógur af litaprufum og litapælingum því liturinn átti að vera sá eini sanni fyrst ég var á annað borð að hafa fyrir því að mála. Að lokum valdi ég litinn Denim Drift frá Nordsjö og eftir ráðleggingar sérfræðinga hjá Sérefni tók ég litinn í almattri málningu frá Sikkens sem gefur litnum mjög mikla dýpt. Ég hef almennt mjög gaman af litapælingum og þarna gat ég alveg gleymt mér í að skoða myndir á netinu í leit minni af hinum eina rétta og hefði getað verið út allt árið að ákveða mig. Ein af ástæðum þess að ég leitaði til Sérefnis er sú að ég hef fylgst með þeim á samfélagsmiðlum og allt efni sem þau birtu talaði einhvernveginn til mín og var algjörlega “minn stíll” ef svo má segja, – þið munuð skilja hvað ég á við ef þið kíkið við á facebook síðuna þeirra. Dálítið eins og að fylgja hönnunartímariti nema það að allir veggir heimilanna eru í gordjöss litum. Mæli með!
Eftir að hafa búið núna með litnum í nokkrar vikur verð ég að segja að ég elska hann. Þessi blái litur er svo síbreytilegur að ég sé hann sífellt í nýju ljósi allt eftir því hvaða tími dags er og hvort ljósið sé kveikt eða aðeins dagsbirta sem skín inn um gluggann. Þið sjáið það á þessum mjög svo fínu símamyndum sem ég tók áðan að efsti partur myndarinnar er gjörólíkur þeim neðsta. Eitt það skemmtilega við þetta ferli, jú það er nefnilega heilt ferli að ætla að mála veggi heimilisins, er það að ég kynntist eiganda Sérefnis og við gátum rætt um liti fram og tilbaka og höfum síðan þá átt nokkur löng símtöl um liti og almennt um hönnun og heimili, ég nefnilega elska að vera í samstarfi við akkúrat svona fólk. Sem hefur þessa sömu ástríðu og ég fyrir heimilum og öllum þeim pælingum sem því fylgja. Ég mæli þó með því að biðja um litaprufur, það er alveg nauðsynlegt til þess að sjá hvernig liturinn verður heima hjá þér, hann verður ekki endilega eins og í svefnherberginu mínu – en ég lofa að fallegur verður hann.
Núna er byrjað að dimma svo snemma dags að hafið í huga að myndirnar eru því örlítið dökkar.
Fallegt, fallegt, fallegt ♡
Ég sé fyrir mér að þessi litur komi vel út í nánast öllum rýmum heimilisins, ég hvet ykkur til þess að prófa að mála í dökkum lit, ég er ekki frá því að ég sofi betur með svona dökka veggi.
Skrifa Innlegg