fbpx

DRAUMASTOFAN & NÝJA KOMMÓÐAN

HeimiliPersónulegtStofa

Ég er aðeins að reyna að breyta til í stofunni hjá mér núna en hef reyndar ekki komist mikið lengra en það að taka sjónvarpið úr sambandi og niður á gólf, mikið er ég eftir að verða vinsæl haha! Við bara horfum svo lítið á sjónvarp og notum helst tölvurnar okkar fyrir bíómyndir svo ég sé hreinlega ekki tilgang þess að eiga sjónvarpstæki sem sýnir í þokkabót bara Rúv:)

Ég keypti mér nefnilega kommóðu á Barnalandi í gær, hélt ég væri að kaupa tekkkommóðu miðað við myndina en sit núna uppi með brúna eikarkommóðu frá ameríska hernum sem er líka alltof stór til að passa hingað inn. Þangað til að ég eignast draumatekkmubbluna eða að ég splæsi í String hillukerfið í Epal þá leyfi ég kommóðunni að búa hjá mér í smástund. Mér skilst að ég þurfi aukageymslupláss fyrir barnið.. ekki barnið sjálft heldur allt sem fylgir því, og því langar mig til að fækka öðrum ljótum mubblum í bili úr litlu stofunni minni eins og tv-inu. Er það ekki bara 100% eðlilegt, nei ég bara spyr?:)

Draumastofan væri hinsvegar svona:

Bloocwebb2.png Bloocwebb3.png

 Og þarna er sko ekkert sjónvarp! :)

Myndirnar stíliseraði Annalena fyrir Blooc. /sjá hér.

NÝTT NUDE MAGAZINE

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

13 Skilaboð

  1. Helga H.

    15. April 2014

    Heheh glerborð og glerhillur með lítið kríli? Ekki mjög gott kombó þar! :D

  2. Helga Hlyns

    15. April 2014

    þessi stofa er æði ! ;) Ekki veistu hvar svona loftljós fæst eða svipað ?

    • Svart á Hvítu

      15. April 2014

      Þetta er frá Tom Dixon og fæst þá í Lúmex hér heima:)
      Sjúklega flott!

  3. Sólveig

    15. April 2014

    Sprey og nýjar höldur á kommóðuna og málið er dautt!

  4. Dagný

    15. April 2014

    Ég er svo heppin að vera með aukaherbergi sem þurfti ekki að nota þar sem við erum barnlaus, var ekki lengi að koma þar fyrir sjónvarpsstofu þegar við fluttum, við kærastinn viljum hvorugt sjá það að vera með sjónvarp í stofunni.. og hvað þá í svefnherberginu! úff!

  5. Margrét

    16. April 2014

    Ofboðslega langar mig að sjá kommóðuna! :)

  6. María

    11. December 2014

    Mjög flott! Veistu hvar þetta glerborð fæst?

    • Svart á Hvítu

      11. December 2014

      Hef ekki séð svona nýlega í verslunum, en Habitat hefur t.d. verið með svona borð og Casa:)

  7. Sif

    5. October 2015

    Hvar fæst þessi motta?

    • Svart á Hvítu

      5. October 2015

      Ég veit ekki hvar nákvæmlega þessi fæst, en það er svipuð til frá Design House Stockholm…