fbpx

NÝTT NUDE MAGAZINE

PersónulegtTímaritUmfjöllun

Ég er ótrúlega ánægð og stolt af nýjasta tölublaði NUDE Magazine sem var að koma út rétt í þessu, það hefur verið bætt við nýjum kafla sem ber heitir NUDE Lifestyle, en eins og nafnið gefur til kynna er þar að finna allskyns lífstílstengt efni, og þar ber hæst ýmislegt efni um HÖNNUN & HEIMILI sem ég ritstýri.

Við heimsóttum tvær ofurkonur sem eiga það sameiginlegt að vera báðar innanhússhönnuðir, tókum viðtal við einn flottasta grafíska hönnuð í Svíþjóð, sýnum það besta frá HönnunarMars og kíkjum í búðir ásamt ýmsu fleiru.

Ég hef sjaldan verið jafn ánægð með einhverja vinnu sem ég skila af mér, þetta er 100% minn smekkur sem þarna er að finna, svo þið ykkar sem kunnið að meta hann munið líka elska þennan kafla sem er bara rétt að að byrja sitt líf núna:) Það er nefnilega sagt að góðir hlutir gerast hægt og því er ég svo sannarlega sammála.

Ég mæli með að þið kíkið á þetta fallega blað -þemað í þetta sinn er Wedding, svo þið ykkar sem eruð að fara að gifta ykkur á þessu ári megið ekki láta blaðið framhjá ykkur fara.

Screen Shot 2014-04-14 at 10.24.36 PM

Screen Shot 2014-04-14 at 10.24.01 PM

Screen Shot 2014-04-14 at 10.24.12 PM

Njótið njótið njótið!

Þess má geta að nýji kaflinn byrjar á blaðsíðu 102 en fram að því má njóta þessa að lesa allt um tísku, förðun og allt það sem viðkemur brúðkaupum!

:)

 

HELGIN MÍN

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Pattra S.

    15. April 2014

    Til hamingju elsku Svana, stórglæsilegt hjá þér!