Danski hönnuðurinn og glerlistakonan Helle Mardahl er engum lík en hún skapar svo fallega og litríka muni sem eru nánast eins og konfekt fyrir augun. Ég kom við á sýningunni hennar Helle Mardahl á 3 days í Kaupmannahöfn og heillaðist alla leið upp úr skónum, þvílíkur draumaheimur sem hún hafði skapað þar sem glerlistin hennar flæddi um öll rými í stórkostlegum uppstillingum og fallegir litir og blóm gerðu þessa upplifun enn meiri.
Mig hefur lengi dreymt um að að eiga verk eftir Helle og bonbonniere skúlptúrinn er þar efst á lista. Svo fallegt – en fyrir áhugasama þá fæst Helle Mardahl hér heima hjá Vest.
Skrifa Innlegg