Þetta heimili hittir beint í mark hjá mér, bleikir tónar eru áberandi í hverju rými og með hvítt í grunninn verður þetta svo afslappað og fallegt fyrir augað. Það þarf varla að taka fram að heimilið er stíliserað fyrir myndatöku hjá Fantastic Frank fasteignasölunni en það má þó sjá ýmsar góðar hugmyndir sem hægt er að gera að sínu. Hillan inni á baðherbergi er sérstaklega sniðug en á svona litlum baðherbergjum er oft erfitt að koma fyrir hirslum en þessi lausn er mjög smart. Einnig er ég alltaf mjög hrifin af því að sjá leikfimirimla inni í barnaherbergjum það er eitthvað svo flott við þá, ég mun klárlega setja þannig upp í krakkaherberginu einn daginn en ég held að afinn lumi einmitt á einum slíkum í skúrnum sínum.
Ég er ekki viss um að ég kæmist upp með að hafa svona mikið bleikt á mínu heimili, bleik motta og bleik veggmynd er of mikið fyrir flesta, en fallegt er það. Íbúðin er mjög lítil en á myndinni hér að ofan má sjá bæði stofuna og borðstofu.
Minimalískt stofuborð úr gleri.
Myndir via
Virkilega fallega stíliserað heimili en ólíkt því sem við flest búum við. Þegar ég lít yfir tölvuskjáinn hjá mér sé ég að minnsta kosti allt annað útlit, barnadót út um allt gólf, fjarstýringar á stofuborðinu og óryksugað teppi. Æj þið fattið, svona venjulegt heimili;)
Skrifa Innlegg