Það eru aldeilis kominn tími á nýjar fréttir af ofurparinu Örnu og Sigvalda sem hafa undanfarið verið að taka í gegn sína fyrstu íbúð. Það hefur verið nóg að gera hjá þeim en þar sem að Sigvaldi starfar sem sjómaður eru teknar pásur inni á milli frá framkvæmdum. Það sem er núna að frétta er að búið er að taka baðherbergið í smá yfirhalningu sem Arna talar þó aðeins um sem bráðabirgða lausn sem þó heppnaðist afar vel og er þvílíkur munur á fyrir og eftir myndunum.
Hvað er núna að frétta af framkvæmdunum hjá ykkur? Við Sigvaldi ákváðum að gera smá fínna inná baði til bráðabirgða, en við munum taka það almennilega í gegn eftir einhverja mánuði þar sem svona framkvæmdir eru ekki þær ódýrustu. Við vildum gera baðherbergið meira kósý og nýtískulegra með einföldum og ódýrum hætti. Klósettið sem var fyrir var orðið ansi lúið og var stanslaust vatnsflæði í gangi. Við byrjuðum því á að fjárfesta í nýju salerni á útsölunum og keyptum þar upphengt klósett.
Hvaða lausn enduðuð þið á varðandi gólfdúkinn? Þeir hjá Slippfélaginu bentu okkur á að það væri hægt að mála dúkinn því okkur fannst hann mjög ósmekklegur á litinn en þetta var einmitt mjög einföld, ódýr og sniðug lausn sem gerir rosalega mikið fyrir baðherbergið.
Svo var restin afskaplega einföld, mála allt hátt og lágt, kaupa nýtt sturtuhengi og fallegan hringlóttan spegil og svo sáum við þessa sniðugu einingu til að hafa undir vaskinn hjá Ikea sem er mjög þægileg til að fela lagnirnar undir vaskinum.
Gólfdúkurinn var málaður steingrár og þvílíkur munur vá!
Þú talar um bráðabirgðalausn, hver eru þá framtíðarplönin? Framtíðarplönin eru að taka út baðkarið og setja stóra sturtu með glervegg, nýjan vask með fallegum blöndunartækjum og flísaleggja baðið í hlýjum tónum. Við munum þó ekkert drífa okkur í því að fara í þær framkvæmdir þar sem við erum svo hrikalega ánægð með þessar breytingar.
-Mikið er ég sammála Örnu, hrikalega flottar breytingar sem kostuði ekki mikið og voru ekki of flóknar. Það er nefnilega vel hægt að gera ýmsar breytingar á heimilinu með útsjónarsemi og það þarf ekkert alltaf að hella sér út í meiriháttar breytingar strax, bara það að mála gólfdúkinn breytti gjörsamlega heildarútliti baðherbergisins og er klárlega lausn sem margir gætu viljað kynna sér betur.
Ég hakka til að sýna ykkur framhaldið, það er enn heilmikið eftir að skoða:)
Skrifa Innlegg