Þá er afmælið hjá Bjarti Elíasi yfirstaðið og vá hvað mamman er búin á því. Ég ætla bara rétt að setja inn tvær myndir í kvöld og sýni ykkur allt betur í næstu færslu. Ég hafði nefnilega lofað Home Magazine að koma í heimsókn í dag og því varð allt að verða spikk og span morguninn eftir að hafa haldið risa veislu, svo núna kemst fátt að nema koddinn minn zzzz. Við gáfum Bjarti í afmælisgjöf indíánafjaðrir sem ég hafði keypt á netinu fyrir nokkru síðan og þær slógu alveg í gegn þó svo að sonurinn átti sig lítið á því hvað þetta er. Ég sé þetta þó fyrir mér vera vinsælt í leik næstu árin og tala nú ekki um hvað þetta er fallegt leikfang.
Svo fékk hann smá aukagjöf sem var þetta plakat sem ég bjó til handa honum. Til að hafa það á hreinu þá sá ég hugmyndina á netinu en þetta er í raun byggt á frægri “fletti”klukku sem ég kenni sjálf við Habitat og hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér. Ég hef séð hugmyndina útfærða bæði með fæðingarupplýsingum barnsins, giftingardegi hjóna og jafnvel sem boðskort í brúðkaup sem kom ansi vel út. Ég teiknaði klukkuna frá grunni í Photoshop og bætti svo við fæðingarupplýsingunum hans Bjarts. Hugmyndin þykir mér svo æðisleg að ég gat ekki staðist það að búa til eitt fyrir soninn:)
Svona endaði kökuskreytingin, nema það að þarna átti ég eftir að leggja dúk á borðið… bæði á mitt borð og hjá dýrunum haha. Andrés minn hélt að sjálfsögðu að ég væri að missa vitið þegar ég sat við borðið að raða partýhöttum á lítil plastdýr sem stóðu á köku, en vá hvað þetta var skemmtilegt. Ég bjó til allskyns dúllerí fyrir veisluna eins og t.d. veifurnar á barnastólnum. Sýni ykkur þetta betur næst!:)
Skrifa Innlegg