Sumarið kallar á fleiri liti inn á heimilið – hvort sem það sé einfaldlega með ferskum blómum í vasa, kertum í skemmtilegum litum, ferskum púðum á sófann eða einfaldlega sumarlegan kaffibolla í þínum uppáhalds lit. Eða að fara alla leið og mála veggina í lit – ég lofa ykkur því að það er gott fyrir sálina að bæta lit í lífið:)
Málaðu loftið í björtum lit, sjáið hvað ljósblátt loftið fer vel við beige/gul litaða veggina –
Mála í bleiku er alltaf góð hugmynd –
Gylltur krani og gylltar höldur við þennan fullkomna græna lit er mjög gott kombó –
Þessi bleiki litur stelur allri athygli og er svo sannarlega eitthvað til að leika eftir –
Málaðir listar í lit er ótrúlega góð hugmynd, sjáið hvað þetta er fallegt!
Litrík rúmföt gleðja á þreyttum morgnum og auðveld leið til að bæta lit við heimilið –
Myndir : Svartahvitu Pinterest
Málað inn í skápa er góð hugmynd og frábær leið til að fríska upp á gömul húsgögn –
Fallegt ekki satt ♡
Skrifa Innlegg