Mér tókst loksins að velja mína uppáhalds mynd í Trendnet leiknum okkar á instagram. Þátttakan var ótrúleg og við erum afar ánægð með hana!
Ég valdi myndina hennar Margrétar – @margretht
Ég fíla þetta outfit og smáatriðin í botn, hálsmenið, úrið, beltið og peysuna/jakkann. Hárið setur svo punktinn yfir I-ið!
Til hamingju Margrét með gjafabréf í SUZIE Q fyrir 10.000 krónur! Ég get ekki sagt annað en að ég öfundi þig því það er til svo mikið flott hjá þeim. Sendu okkur póst á trendnet@trendnet.is til að nálgast gjafabréfið þitt.
Londonkveðja..
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg