Ég er að springja úr tilhlökkun.. og stolti!
Tveir + sex eru glænýir sjónvarpsþættir sem sýndir verða á PoppTíví í vetur. Þættirnir fjalla á opinskáan hátt um kynlíf og eru hugsaðir sem skemmtilegir fræðsluþættir handa ungu fólki. Þáttastjórnendur eru engir aðrir en besta vinkona mín hún Sunneva og vinur hennar Veigar. Til hjálpar þeim verður Sigríður Dögg Arnardóttir, kynfræðingur.
Mér líst gríðarlega vel á þetta og hlakka mikið til að byrja að horfa. Viðurkenni það að partur af tilhlökkuninni sé að besta vinkonan sé á leiðinni í sjónvarpið, þið hljótið að skilja!
—
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg