Önnur sýningin mín á RFF var fyrir Siggu Maiju. Eins og með sýninguna hennar Magneu höfðu margir beðið spenntir eftir Siggu Maiju, enda er þetta hennar fyrsta lína og vakti hún mikla lukku. Ég er mjög hrifin af mörgu í línunni en franskur súrrealismi var innblástur hennar. Rauður og blár voru áberandi og erótísk print, í bland við leður og svart. Kristín Erla, ein af mínum bestu vinkonum, sá svo um að farða mig og var förðunin og hárið mjög frísklegt og fallegt. Stingandi blár eye-liner, brúnn augnskuggi og hárið í wet look sem ég er einmitt farin að fíla betur og betur. Það var Guðbjörg Huldís make-up artisti sem hannaði lúkkið.
Aldrei nóg af selfies…
Myndir fyrir utan mínar: Eygló Gísla og Birta Rán
Takk fyrir mig Sigga Maija <3
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg