Við Denise áttum gæða-stund milli stríða einn sunnudaginn og fórum að sjá Latabæ í Þjóðleikhúsinu. Katrín vinkona okkar er ein af dönsurunum í sýningunni og það var yndislegt, eins og alltaf, að sjá hana á sviðinu.
Það er „loksins” komið veður fyrir pelsinn. Þennan fékk ég á flóamarkaði í LA í apríl á heila 45 dollara eða um 5.600 krónur. Mamma ferðalangur kom svo heim frá bestu Svíþjóð með hattinn og skóna sem eru í miklum mætum hjá mér þessa dagana.
Pels: flóamarkaður í LA
Buxur: Topshop – bestu svörtu gallabuxur sem ég hef átt
Skyrta: AllSaints
Hattur: Monki
Skór: Monki
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg