Tvennt nýtt í snyrtibuddunni minni – frá MAC
MAC Face and Body foundation
Farði sem hefur ótal sinnum verið notaður á mig í myndatökum eða öðrum verkefnum. Ég er með þurra húð og því er hann oft notaður á mig. Ég tók lit C1 enda með mjög ljósa húð. Meira hér.
MAC Mineralize Concealer
Mjög góður hyljari sem inniheldur steinefni. Ég hef verið að nota of þykkan hyljara í of langan tíma og þessi er mjög kærkominn þar sem hann er léttur en þekur vel. Ég tók hann í lit NC15. Meira hér.
Báðar vörurnar eru í mjög ljósum tónum þar sem húðin mín verður alveg einstaklega hvít á veturna. Einnig passa ég upp á að sami tónn sé á andliti og á líkama – annað er heldur óheppilegt
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg