Opnun Húrra Reykjavík Women á fimmtudaginn síðasta gekk vonum framar. Við gengið og iðnaðarmennirnir vorum á fullu frameftir degi að fínpússa búðina og gera hana tilbúna. Allt var svo klárt á réttum tíma og dyrnar að nýju versluninni opnuðu á slaginu 18:00. Fjöldi fólks lagði leið sína á Hverfisgötu 78 og stemningin var virkilega skemmtileg! Snorri Björnsson tók myndir af gestum og gangandi;
Hjartans þakkir fyrir komuna þið sem komust á opnunina! Við erum enn í skýjunum og að ná okkur niður á jörðina. Hlakka til að sjá ykkur sem flest á Hverfisgötu 78 á næstunni :-)
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg