Við héldum okkar eigin litlu jól í gær þar sem við verðum ekki í sama landinu um jólin – ég verð í (vonandi) hitanum í Orlando og Gulli heima á Íslandi í fyrsta skipti í nokkur ár – frekar týpískt!
Var í fínu nýju blússunni minni úr Zöru og með varalitinn Brave red frá MAC. Skyrtan hans er frá Zöru.
Nú er ég heldur betur komin í jólaskap.
Mig langar að minna ykkur á uppboðið hans Gulla en síðustu vikur hefur hann verið að bjóða upp treyjur ýmissa knattspyrnumanna. Ágóðinn rennur svo beinustu leið til Barnaspítalans. Treyja Thierry Henry er á uppboði til hádegis á morgun, meiri upplýsingar HÉR.
—
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg