Jólagjafainnpökkunin hófst í gær en hún er einn uppáhalds jólasiðurinn minn. Hingað til hafa jólagjafirnar frá þessu heimili verið amerískar fyrir allan peninginn; glanspappír með jólasveinum og englum, glimmerborðar og lengi mætti telja. Við ákváðum að breyta örlítið til þessi jólin og eru gjafirnar aðeins einfaldari en áður en að mínu mati alveg jafn fallegar. Ég gerði mér ferð í Sostrene Grene og Tiger þar sem ég fann skemmtilegan gjafapappír, borða og merkimiða.
Skemmtilegt að breyta til
—
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg