Mig er búið að langa að stytta hárið mitt í sumar og lét loksins verða af því fyrir helgi
Það er ekkert svo langt síðan ég lét klippa hárið mitt síðast, og þá stytti ég það meira en ég var vön. En hárið mitt vex mjög hratt og mig langaði að prófa að klippa enn meira af því en síðast –
Þetta er hann Grjóni, klipparinn minn til 8 ára! Mér finnst mjög þægilegt að vera ekki í vandræðum með hvert ég á að leita þegar mig vantar klippingu og Grjóni kann vel á hárið mitt, algjör snillingur. Hann er á Rauðhettu og Úlfinum.
Hárið fyrir klippingu..
Útkoman!
Ég er mjög ánægð með breytinguna. Hún er ekkert rosalega mikil, og þó breyting. Næst prófa ég örugglega að klippa meira, mig allavega langar til þess núna.
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg