fbpx

HELGIN

Helgin mín var pökkuð af skemmtilegum hlutum með skemmtilegu fólki.

Tvennir tónleikar, brunch, Gay Pride og laugardagsgaman.

Trendnet átti afmæli

Þessi fallega rós beið mín við útidyrahurðina, takk Trendnet x

Retro Stefson

Mér var boðið á Retro Stefson tónleika á Faktorý – þeir voru fáránlega góðir.. og sveittir!

Brunch

Lúxusbrunch á laugardegi, nammi

Gay Pride

Við vinirnir kíktum í bæinn og sáum litadýrðina og restina af göngunni, kíktum á fatamarkað og nutum góða veðursins

Laugardagsgaman

Ég fékk þennan fína kjól á fatamarkaði á Laugarvegi 7 sem nokkrar flottar tískukonur héldu sama dag. Hálsmenið fékk ég á markaði á Mallorca.

GusGus

Síðustu tónleikarnir á Faktorý áður en þeim dýrindis stað var lokað. GusGus eru í miklu uppáhaldi hjá mér og það var að sjálfsögðu fjör á tónleikunum, ég bjóst ekki við neinu öðru!

x

Andrea Röfn

GJAFAGLEÐI

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Signý

    14. August 2013

    Flottust:)

  2. Hrönn

    14. August 2013

    Ekki gætiru sagt mér hvaða augnskugga þú ert með á myndinni þar sem þú ert í gula kjólnum? Ekkert smá flottur! :)

    • Andrea Röfn

      14. August 2013

      Hann er frá Clinique og heitir Foxy – ég er með algjört æði fyrir honum! Stal honum úr snyrtitöskunni hennar mömmu. Takk!