fbpx

URBAN OUTFITTERS AW13

Urban Outfitters sýndu nýlega brot úr næstu vetrarlínu sinni. Í fyrsta skipti var lookbook-in á video formi sem mér finnst mjög flott og gaman þegar eitthvað er gert öðruvísi.

Línan er að sjálfsögðu stíluð inn á kaldara veður, og ég tók sérstaklega eftir flottum yfirhöfnum, mynstrum og húfum. Það verður gaman að sjá alla línuna í heild sinni!

Ég er ein af þeim sem finnst alltaf gaman að  fara í Urban og finn mér yfirleitt eitthvað við mitt hæfi. Búðirnar  geta samt klárlega verið misstórar og misflottar og ég hugsa mig oft tvisvar um því að gæðin eru oft ekki nógu mikil miðað við verð – því miður. En búðin er alltaf jafn flott.

xx

Andrea Röfn

SÍÐUSTU VIKUR

Skrifa Innlegg