fbpx

NIKITA Í FRAKKLANDI #1

Þá er æðislegum myndatökum fyrir NIKITA SS’14 lokið. Mikið sem það var gott og gaman að eyða tíma með Nikita fjölskyldunni! Við byrjuðum í London eins og ég sagði frá. Þaðan flugum við svo til suðvestur Frakklands og kíktum yfir til Spánar einn daginn.

Ég tók nóg af myndum, að sjálfsögðu. Hérna er fyrri parturinn;

Action myndataka, Esther ljósmyndari stendur úti á götu og þurfti alltaf að hlaupa fram og til baka þegar það komu bílar.. á rush hour!

Besti ísinn á svæðinu.. mmm

Fín greiðsla ala Fríða María!

Góðu kvöldin og góði maturinn við ströndina

Dolfie shoes. Everybody loves everybody!

Hengistóll drauma minna!

Stríðsbunkerar úr síðari heimsstyrjöldinni. Magnað.

Kvöldsólin

Hlaup á strönd eru skemmtilegri en önnur hlaup

Surfskóli

—–

Núna er ég komin heim til Íslands, í fyrsta skipti síðan í byrjun apríl. Það er æðislegt á sama tíma og ég sakna strax heimilisins í Hollandi. Svona er þetta að vera alltaf á flakki, ég taldi það í dag að ég hef stigið inn í hvorki meira né minna en 17 flugvélar það sem af er árinu, jahhá!

Hlakka til að sýna ykkur restina af myndunum :)

xx

Andrea

NEW IN

Skrifa Innlegg