Í gær keyrðum við yfir til Spánar til að taka myndir
Þar komst ég í spænska Zöru – og er það ekki óskrifuð regla að ganga ekki tómhentur þaðan út?
Blússa hér
Ég setti mig í hvítra skyrtu/blússu bann um daginn, bara af því ég er svo sjúk í þær og tel mig eiga nóg af þeim. En svo ákvað ég að „aflétta banninu”, því afhverju að hætta að kaupa eitthvað sem manni líður vel í?
Jakki hér
Þessi jakki minnir mig smá á Filippu K jakka sem ég sá í búðinni í Amsterdam og var mjög hrifin af. Hann er úr mjög mjúku og fínu efni.
Þetta finnast mér góð og skemmtileg kaup, sumarleg líka!
Kveðja –
Ein sátt í Frakklandi
Skrifa Innlegg