Chanel Haute Couture sýningin fór fram í vikunni. Línan var vor/sumar 2013 lína Karls Lagerfeld. Sýningin fór fram í Grand Palais í París og var höllin full af tískuunnendum. Höllin var skreytt í stíl við rómantíska línuna með trjám sem sérstaklega voru flutt þangað inn fyrir sýninguna.
Línan er rómantísk og kvenleg í bland við dramatískt make-up og hárskraut. Svart og hvítt var áberandi, blómamynstur, blúndur, fjaðrir og tweed. Ég var hrifnari af þessu svarta, hvíta og fjöðrunum frekar en blómakjólunum.
Í endann löbbuðu tvær fyrirsætur pallinn í brúðarkjólum í stuðningi við hjónabönd samkynhneigðra í Frakklandi.
Aðalmaðurinn
Ég mæli með því að þið horfið á myndbandið til að sjá fötin betur og einnig fallegu höllina.
—
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg