Með heimsókninni að heiman fékk ég sendingu úr fataskápnum mínum, meðal annars þetta skópar sem ég hafði saknað
FCUK frá síðasta vetri. Aðeins farið að sjá á leðrinu en það gerir þá bara flottari.
Ég var næstum því búin að kaupa mér svipað par í Urban Outfitters í London en þá mundi ég eftir skóparinu sem beið mín heima. Það getur ekki verið að ég sé sú eina sem á það til að gleyma einstaka flíkum eða skópörum sem ég á, er það nokkuð?
Urban Outfitters (110£) hér.
—
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg