Ég byrja helgina mína á smá heimilisinnblæstri en þetta fallega sænska heimili sem staðsett er í Gautaborg er alveg dásamlega fallegt. Veggfóðrið í eldhúsinu gefur heimilinu smá rómantískt yfirbragð en veggfóður eru í dag ennþá frekar óalgeng þrátt fyrir að vera svo ótrúlega falleg og fjölbreytt. Gubi Semi ljósið og Ton stólar í bland við Sjöu og Maur eru svo flottar andstæður við skrautlegt blómaveggfóðrið og gefur eldhúsinu meira jafnvægi og útkoman er virkilega falleg.
Gylltur krani – já takk! Sá einn fallegan kopar krana í Byko í síðustu viku… mjög fallegir.
Vegghengi eru að koma mjög sterk inn núna – ég mæli með íslensku MARR vegghengjunum sem eru dásamlega falleg.
Flottur myndaveggur – en það eina sem ég sé á þessari mynd er tryllta Bouroullec sjónvarpið sem þeir bræður hönnuðu fyrir Bang & Olufsen.
Hér eru tímarit geymd í stöflum á gólfinu og smáhlutir skreyta bókahilluna!
Myndir: Stadshem.
Það má gera ýmislegt skemmtilegt við ljósaskiltin vinsælu haha..
Yfir í annað þá var ég að draga út vinningshafa í Tom Dixon púðaleiknum sem var í samstarfi með Lumex – sú heppna heitir Halla Dröfn og dró ég hana út af handahófi að sjálfsögðu.
Takk kærlega fyrir þátttökuna og Halla Dröfn! Hafðu samband ♡
Skrifa Innlegg