fbpx

DIOR HYDRA LIFE BB CREME

ALLIR voru að tala um BB krem – nú er ég ein af þeim!

Ég prófaði nýlega Hydra Life BB kremið frá Christian Dior. Á hverjum degi nota ég Dior Hydra Life pro-youth andlitskremið og því hentaði mér vel að prófa BB kremið úr sömu línu.

BB kremið kemur í einum tón og hefur SPF upp á 30, þannig að við þurfum ekki að óttast sólina þegar við höfum það á okkur. Umbúðirnar eru mjög hentugar en kremið kemur í túbu með pumpu, sem gerir það að verkum að allt kremið er á botni túbunnar og maður skilur ekkert eftir að lokum.

Ég er mjög ánægð með vöruna. Kremið hentar mér vel þar sem það er ekki of þykkt og aðlagast húðlitnum mínum vel. Það gerir húðina þó örlítið brúnni en venjulega og ég þurfti 2-3 daga til að ná því að þetta væri það eina sem ég þyrfti að nota á húðina. Ég mæli hiklaust með þessu kremi fyrir þær sem langar að prófa BB krem og get lofað því að þetta mun auðvelda ykkur morgunrútínuna fyrir framan spegilinn!

Á næstu dögum langar mig svo að sýna ykkur hvað ég er með í litlu og einföldu snyrtitöskunni minni – fylgist með.

Andrea Röfn

 

BEANIES

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Sigríður

    10. October 2012

    Okei nú veit ég voða lítið um snyrtivörur, en hvað er bb krem?