Ég má til með að birta eina færslu með viðburðum dagsins + kvöldsins þrátt fyrir að nokkrar opnanir séu þegar hafnar. Ég vona að þið séuð byrjuð að njóta HönnunarMars og alls þess sem hátíðin hefur upp á að bjóða. Núna kl.17.30 hófst formleg setning HönnunarMars í Hafnarhúsinu sem er alltaf gaman að kíkja á en á sama tíma opna 3 spennandi sýningar í húsinu. Mér tókst að næla mér í hita í gær og mun því alfarið missa af deginum í dag sem mér þykir alveg hrikalegt enda nokkrir vinir mínir með opnunarhóf á eftir. Ég tók þó saman nokkrar sýningar sem eru extra spennandi ásamt því að birta heildar lista yfir allar opnanir í dag/kvöld.
Keramik í Kokku: Keramikdeild Myndlistaskólans í Reykjavík hefur undanfarin ár verið í samstarfi við þýsku postulínsverksmiðjuna Kahla. Nemendur deildarinnar hafa heimsótt verksmiðjuna og sum verkefni þeirra hafa endað þar í framleiðslu. Verkefni nemenda verða til sýnis í Kokku sem einnig selur vörur frá Kahla.
Í dag opnaði Hlín Reykdal verslun á Fiskislóð 75 með pomp og prakt. Hátíðleg stemmning og léttar veigar, opnunin stendur til 20:00 og því er enn séns að kíkja á opnunina
Willow Project opnaði rétt áðan kl.17:00 í Sjóminjasafninu en það er hrikalega spennandi verkefni unnið af nemendum á þriðja ári í vöruhönnun í Listaháskóla Íslands í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur. Þess má geta að Theódóra okkar fyrrverandi “Trendnetingur” er partur af þessu verkefni.
RE7, Íslensk húsgögn og hönnun, og Iðnaður eru þrjár spennandi sýningar sem allar eru staðsettar í Hafnarhúsinu og opnuðu kl.17.30.
RE7: Frá Kaupmannahöfn kemur Dögg Design með nýjustu línu sína Roots og Hrafnkell Birgisson sýnir borðlampana Tools You Light, HAF Studio kynnir nýjan koll og geymslubox úr sinni smiðju, Kjartan Oskarsson Studio sýnir nýja útgáfu af HALO lampanum HALO Mirror, Design by Gróa sýnir stólinn Into the Blue og ljósin Wooly og hönnunarstúdíóið White Cubes sýnir nýstárleg ljós. Að auki verður frumútgáfa af stólnum Hófnum eftir Jóhann Ingimarsson (Nóa) til sýnis. Íslensk húsgögn og hönnun: Sýnendur eru AGUSTAV, Axis, Á. Guðmundsson, G.Á. húsgögn, Sólóhúsgögn, Syrusson og Zenus. Sýningarstjóri og hönnuður er Theresa Himmer, grafískur hönnuður er Snæfríð Þorsteinsdóttir. Iðnaður er spennandi sýning sem félag íslenskra gullsmiða standa fyrir.
Hannesarholt! 6 spennandi sýningar opna núna kl.18:00, þar má nefna North Limited sem er samstarfshópur þriggja íslenskra hönnuða, þeirra Guðrúnar Valdimarsdóttur, Þórunnar Hannesdóttur og Sigríðar Hjaltdal. Stíll North Limited er bæði nýstárlegur og hlýr þar sem vörur hönnuðanna blandast vel saman í eina heild og sameina notagildi, fegurð og tímalausa fagurfræði. Opnunarpartýið hefst kl.18:00
Stöðlakot: Í fallegum húsakynnum Stöðlakots mun fjölbreytileg íslensk og finnsk hönnun vera til sýnis. Þar verður einnig örsmá búð þar sem hægt verður að kaupa fyrstu eintökin.Að sýningunni standa Ragnheiður Ösp, IHANNA HOME, Sonja Bent, ANNA ÞÓRUNN, Reykjavík Raincoats, Hring eftir hring, MARÝ, Arc-Tic Watches og Katariina Guthwert. Opnunarpartýið hefst kl.18:00
Weaving DNA er samvinnuverkefni íslenska vöruhönnuðarins og vinkonu minnar Hönnu Dísar Whitehead og skoska textílhönnuðarins Claire Anderson. Í sýningunni Hiding Colour eru litbrigði úr Reykjavík falin í hefbundnum skoskum textíl sem er samstarf hönnuðanna og Knockando Woolmill. Opnunarpartýið hefst kl.18:00
EldhúsMars er lítil en skemmtileg sýning staðsett í Hrím Eldhús, Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir, kynnir kryddjurtapottinn “Lífæð” og Theodóra Alfreðsdóttir, kynnir matarstell fyrir tvo sem staflast upp í Totem. Opnunarpartý hefst kl.19:00.
Hér að neðan má sjá alla þá viðburði sem hófust í dag, en eins og með allar sýningarnar þá standa þær fram á sunnudag ef þið skylduð ekki komast á opnanirnar eins og ég:)
15:00 | Silfur, gull og íslenskt grjót, Anna María Design, Skólavörðustíg 3
16:00 | Hlín Reykdal, Fiskislóð 75
17:00 | Keramik í Kokku, Kokka, Laugavegi 47
17:00 | Helga Ósk, Erling Gullsmiður Aðalstræti 10
17:00 | Ró, Klapparstíg 11
17:00 | Úr viðjum víðis / Willow Project, Sjóminjasafnið í Reykjavík, Hornsílið, Grandagarði 8
17:30 | Opnun HönnunarMars 2016, Hafnarhúsið, Tryggvagötu 14
17:30 | RE 7, Hafnarhúsið, Tryggvagötu 14
17:30 | Íslensk húsgögn og hönnun, Hafnarhúsið, Tryggvagötu 14
17:30 | Iðnaður, Hafnarhúsið, Tryggvagötu 14
17.30 | GREYKJAVÍK, NORR11, Hverfisgötu 18a
18:00 | KRAUM, Aðalstræti 10
18:00 | Þjóðarsálin, Hannesarholt, Grundarstígur 10
18:00 | Falinn skógur, framhald, Hannesarholt, Grundarstígur 10
18:00 | North Limited, Hannesarholt, Grundarstígur 10
18:00 | Saana ja Olli, Hannesarholt, Grundarstígur 10
18:00 | Lífæð, Hannesarholt, Grundarstígur 10
18:00 | Saga Kakala kynnir Gyðjur, Hannesarholt, Grundarstígur 10
18:00 | Samskot, Stöðlakot
18:00 | Silfra, Geysir skólavörðustíg 7
18:00 | Or Type Reading Room + Video Hailstorm (VHS), Mengi, Óðinsgötu
18:00 | Sturla Aqua, Húrra Reykjavík, Hverfisgötu 50
18:00 | Weather: Part I, Kirsuberjatréð, Vesturgötu 4
18:00| Weaving DNA, Hiding Colour Hverfisgallerí, Hverfisgötu 4
19:00 | 15/15, Steinunn Studio, Grandagarði 17
19:00 | EldhúsMars, Hrím Eldhús, Laugavegi 32
20:00 | Minjaverur, Fóa, Laugavegur 2
21:00 | Showroom Reykjavík haust/vetur 2016/17, Ráðhús Reykjavíkur
Skrifa Innlegg