Ég er ekki mikil snyrtivörumanneskja- sem kemur niður á mér þegar ég ætla að gera mig fína um helgar að ég kann ekki mikið annað en að setja á mig maskara og varalit! Ég á það þó til að fá æði fyrir einstaka snyrtivörum og dönsk vinkona mín sýndi mér fyrir nokkrum árum stifti sem ég er með mikið æði fyrir.
Stiftið er frá NARS og heitir the Multiple en það er hægt að nota það sem kinnalit, augnskugga og varalit. Ég nota það yfirleitt á kinnarnar sem gerir förðunina meira spennandi og lætur kinnarnar glansa skemmtilega.
Liturinn minn – „orgasm”
Leighton Meester með „The Maldives”
Ég mæli með því að þið kíkið á NARS næst þegar þið eruð í snyrtivörupælingum!
—
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg