fbpx

TVEIR + SEX

Ég er að springja úr tilhlökkun.. og stolti!

Tveir + sex eru glænýir sjónvarpsþættir sem sýndir verða á PoppTíví í vetur. Þættirnir fjalla á opinskáan hátt um kynlíf og eru hugsaðir sem skemmtilegir fræðsluþættir handa ungu fólki. Þáttastjórnendur eru engir aðrir en besta vinkona mín hún Sunneva og vinur hennar Veigar. Til hjálpar þeim verður Sigríður Dögg Arnardóttir, kynfræðingur.

Mér líst gríðarlega vel á þetta og hlakka mikið til að byrja að horfa. Viðurkenni það að partur af tilhlökkuninni sé að besta vinkonan sé á leiðinni í sjónvarpið, þið hljótið að skilja!

Andrea Röfn

VINNA

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Svart á Hvítu

    14. September 2012

    Ég var einmitt í Epal í gær og var að forvitnast um mjög svo áhugaverða útstillingu sem var svo útaf því að þessi þáttur var tekinn upp þar! haha, ég átti allra síst von á því að sjá dildóa í Epal:)
    -Svana