Það var mikið um skemmtilegar hár-útsetningar í vinnunni í gær.
Fríðu Maríu, sem málar mig líka, finnst gaman að breyta hárinu inn á milli og prófa sig áfram með ýmsar fléttur og tögl. Í þetta skiptið ákváðum við að taka myndir af þeim fyrir ykkur.
1. Snúningsflétta
2. Fiskifléttu-tagl
3. Lítill lokkur utan um hárið
4. Flétta með einum fléttuðum lokk
5. Fiskiflétta
Bara ef ég gæti kennt ykkur þetta! Ég er rosaleg þegar kemur að hári og læt helst einhverja aðra sjá um að gera svona fínt.
Prófið ykkur áfram, þessar fléttur tóku Fríðu ekki nema 2 mínútur.
—
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg