Ég slysaðist inn á Weekday síðuna í morgun og hékk inni á henni í klukkutíma að skoða öll fallegu fötin þar.
Skandinavíski stílinn finnst mér svo fallegur og merkin eru vel valin, m.a. Back, Cheap Monday, MTWTFSS(Weekday) og Rodebjer.
Þessu, ásamt miklu fleiru, gæti ég vel hugsað mér að klæðast:
Ég er brjáluð í gráu rúllukragapeysuna, skóna og hvítu peysuna með rennilásunum.
Pínu vetur í þessu hjá mér, en mér finnst líka miklu skemmtilegra að klæða mig á veturna, það býður upp á fleiri möguleika.
—
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg