Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að síðasta helgi var tileinkuð tísku og hönnun. Ég tók fullan þátt í henni og naut í botn, á sama tíma og álagið var frekar mikið. YULIA tískusýning Hildar Yeoman var fyrsta sýningin af fjórum en hún var partur af Hönnunarmars. Húsfyllir í Hafnarhúsinu og klikkað flott show með dönsurum og flottu sviði. Allar fyrirsæturnar voru með rokkað make up sem Ísak Freyr stjórnaði og vafflað hár. Línan var rosalega flott og ég spottaði strax fullt af flíkum sem mættu endilega hanga í mínum fataskáp og munu eflaust gera það í framtíðinni.
Nóg er til af myndum enda ekkert lítið um ljósmyndara bæði baksviðs og frammi. Fleiri myndir eru á facebook síðu Hildar, hér.
xx
Andrea Röfn
Skrifa Innlegg